Persónuverndarfulltrúi fyrir þitt fyrirtæki

Er ekki kominn tími til þess að taka persónuverndina föstum tökum?

Vertu framúrskarandi ábyrgðaraðili

Þjónustusamningur um persónuverndarfulltrúa

Gerðu þjónustusamning við okkur og vertu framúrskarandi ábyrgðaraðili

Skylt er að tilnefna persónuverndarfulltrúa hjá öllum stofnunum og sumum fyrirtækjum. Ef meginstarfsemi fyrirtækja felur í sér vinnsluaðgerðir sem krefjast, vegna eðlis síns, umfangs og/eða tilgangs, umfangsmikils, reglubundins og kerfisbundins eftirlits með skráðum einstaklingum er þeim skylt að tilnefna persónuverndarfulltrúa.

Meginstarfsemi ábyrgðaraðila

Hvað felur meginstarfsemi fyrirtækisins í sér?

Vinnsla persónuupplýsinga þarf að vera einn af lykilþáttum í starfsemi fyrirtækisins þ.e.a.s. þegar vinnsla persónuupplýsinga er órjúfanlegur þáttur í starfseminni. Ábyrgðaraðili þarf að meta það hverju sinni hvort vinnsla persónuupplýsinga sé umfangsmikil. Best er að fá utanaðkomandi aðila til þess að meta umfang vinnslunnar. Að sama skapi þarf að meta hvort fyrirtækið viðhefur reglulegt og kerfisbundið eftirlit. Dæmi um slíkt er annars vegar vinnsla persónuupplýsinga í tengslum við meðlimaaðild hjá fyrirtækjum og hins vegar notkun öryggismyndavéla. Ábyrgðaraðilar mega tilnefna utanaðkomandi persónuverndarfulltrúa.

Umfangsmikla vinnslu persónuupplýsinga

Reglulegt og kerfisbundið eftirlit

Sérfræðingar í persónuvernd

Tilnefndu okkur sem persónuverndarfulltrúa fyrirtækisins

Áhættumat

Mat á áhrifum á persónuvernd

Reglufylgni

Þjálfun starfsfólks

Vitundarvakning um persónuvernd

Efling persónuverndarmenningar

Úttektir á stöðu persónuverndar

Vinna með eftirlitsstjórnvaldinu

Tengiliður við eftirlitsstjórnvaldið

Hugsum um persónuvernd

Vitundarvakning um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hjá ábyrgðaraðilum

Vinnsla persónuupplýsingaRafræn vöktunViðkvæmar persónuupplýsingar og vinnsla þeirraFræðsluskylda

Okkur er umhugað um persónuvernd. Friðhelgi einkalífsins er veitt vernd í 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Það er því um vernd grundvallarréttinda og frelsis einstaklinga að ræða þegar vísað er til persónuverndar. Við aðstoðum fyrirtæki við að verða framúrskarandi ábyrgðaraðilar í persónuvernd, þannig að tekið sé eftir. Viðskiptavinir kunna að meta fyrirtæki sem láta sér annt um réttindi þeirra og taka skyldur sínar þar að lútandi alvarlega. Er þitt fyrirtæki framúrskarandi í persónuvernd?

Hafðu samband við okkur

Vertu framúrskarandi ábyrgðaraðili

Hafðu samband við okkur og bókaðu fund. Fyrsta viðtal kostar ekkert. Í framhaldinu gerum við úttekt á stöðu persónuverndar í fyrirtækinu og ákveðum framhaldið í sameiningu. Það eru yfirleitt margir möguleikar í stöðunni en aðalatriðið er að fyrirtækið uppfylli kröfur persónuverndarlaga. Ef allir starfsmenn eru meðvitaðir um persónuvernd og fylgja þeim ferlum sem við búum til, ef þeir eru ekki þegar til staðar, þá verður fyrirtækið framúrskarandi í persónuvernd. Hlökkum til að heyra frá þér.

Sími

779-0900

Netfang

fbg@fbg.is

Skrifstofutímar

Alla virka daga frá 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

2 + 10 =

Persónuverndarfulltrúi – FBG ráðgjöf

Persónuverndarfulltrúi fyrir þitt fyrirtæki.

HAFA SAMBAND

FBG ráðgjöf ehf.
Stekkjarbakki 6, Reykjavík
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is