Forsíða / Upplýsingar
Persónuverndarstefna
FBG ráðgjöf ehf., kt. 450917-0440, (hér eftir vísað til sem ,,FBG” eða ,,félagsins”) hefur einsett sér að tryggja öryggi, trúnað og áreiðanleika persónuupplýsinga sem unnið er með innan félagsins.
Persónuverndarstefna þessi nær til persónuupplýsinga einstaklinga sem eru í viðskiptum við félagið, einstaklinga sem hafa samband við félagið, tengiliði sem koma fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið og aðra tengiliði (hér eftir vísað til sem ,,viðskiptavinar” eða ,,þín”).
Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum félagið safnar og með hvaða hætti slíkar persónuupplýsingar eru nýttar og hverjir hafa aðgang að upplýsingunum.
Ef þig vantar nánari upplýsingar um það hvernig stefna þessi varðar þig, er þér velkomið að hafa samband við persónuverndarfulltrúa félagsins til að fá frekari upplýsingar. Samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa koma fram í lok stefnunnar.
1. Tilgangur og lagaskylda
Persónuverndarstefna félagsins byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (hér eftir vísað til sem ,,persónuverndarlaga” eða pvl.) og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679. (hér eftir vísað til sem ,,reglugerðarinnar” eða pvrg.)
2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Í skilningi persónuverndarstefnu þessarar eru persónuupplýsingar hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
3. Persónuupplýsingar sem FBG ráðgjöf ehf. vinnur um viðskiptavini
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar. Mismunandi upplýsingum kann að vera safnað um þig, eftir því hvort þú ert sjálf/ur í viðskiptum við félagið eða hvort þú komir fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið.
Þegar við vinnum fyrir einstaklinga söfnum við eftirfarandi upplýsingum um viðskiptavini:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang;
- kennitala;
- upplýsingar um lánshæfi;
- upplýsingar úr samskiptum; og
- reikningsupplýsingar, m.a. upplýsingar um vsk. númer og séróskir varðandi reikningagerð.
Þegar við vinnum fyrir lögaðila söfnum við upplýsingum um forsvarsmenn slíkra aðila, aðallega:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, símanúmer, netfang og samskiptasaga.
Þá kann að vera að félagið safni upplýsingum um stjórnmálaleg tengsl einstaklinga í áhættuhópi í skilningi laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en einstaklingar sem teljast til slíks áhættuhóps eru þeir sem hafa verið eða eru háttsettir í opinberri þjónustu, nánasta fjölskylda þeirra og einstaklingar sem vitað er að eru nánir samstarfsmenn þeirra.
Framangreindu til viðbótar kunnum við einnig að safna og vinna aðrar upplýsingar sem viðskiptavinir eða forsvarsmenn/tengiliðir viðskiptavinar láta okkur sjálfir í té sem og upplýsingar sem eru okkar nauðsynlegar vegna starfsemi okkar, þ.m.t. meginstarfsemi okkar, sem er lögfræðiþjónusta. Við höfum lögmæta hagsmuni af því að tryggja að viðskiptavinir okkar fái góða þjónustu en framangreindar upplýsingar eru eingöngu unnar með því markmiði. Upplýsingarnar kunna einnig að vera unnar á grundvelli lagaskyldu og óháð þeirri þjónustu sem félagið hefur tekið að sér að veita viðskiptavinum, t.d. hvað varðar reglur um peningaþvætti eða bókhaldslög.
Persónuupplýsinga er alla jafna safnað beint frá viðskiptavini eða tengilið hans. Þó kunna upplýsingar að koma frá þriðju aðilum, t.d. Creditinfo, stjórnvöldum, dómstólum, þjónustuveitendum viðskiptamanna, gagnaðilum og öðrum lögfræðistofum. Einnig af vefsíðum, samfélagsmiðlum og gagnabönkum. Komi upplýsingar frá þriðja aðila í öðrum tilvikum munum við upplýsa viðskiptavini okkar um það.
Framangreindar upplýsingar eru varðveittar í allt að fjögur ár frá lokum viðskipta eða frá lokum viðskiptasambands ef um viðvarandi viðskiptasamband hefur verið að ræða. Upplýsingar sem falla undir bókhaldslög eru geymdar í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Upplýsingar sem varða eiginlega lögfræðiþjónustu félagsins kunna að vera varðveittar lengur enda kann vinnsla þeirra að reynast nauðsynleg til þess að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur. Varðveislutími í slíkum tilvikum miðast þá við fyrningarfrest krafna sem mest getur orðið fjórtán ár.
4. Vinnsla vegna annarra sem samband hafa og heimsækja vefsíður okkar
Við vinnum almennt með samskiptaupplýsingar og samskiptasögu þeirra sem hafa samband við okkur. Heimsóknir á vefsíðu eru skráðar með notkun nauðsynlegra vefkaka og byggir sú vinnsla á lögmætum hagsmunum okkar. Við söfnum einnig ópersónugreinanlegum tölfræðiupplýsingum um notkun á vefsíðunni.
5. Markpóstur
Við sendum reglulega út markpóst til þess að kynna þjónustu okkar og afla nýrra viðskiptavina. Vinnsla tölvupóstfanga í slíkum tilgangi byggir á lögmætum hagsmunum félagsins af markaðssetningu.
Ef aðilar vilja ekki fá slíkan póst, þá geta þeir afskráð sig með því að smella á þartilgerðan hlekk í tölvupóstinum.
6. Miðlun til þriðju aðila
Persónuupplýsingum þínum kann að vera miðlað til þriðja aðila á grundvelli viðeigandi laga eða reglna, t.d. til stjórnvalda, dómstóla eða lögreglu. Persónuupplýsingar þínar kunna jafnframt að vera afhentar þriðja aðila sem veita okkur upplýsingatækniþjónstu eða þjónustu sem tengist vinnslu og telst hluti af rekstri félagsins. Við miðlum ekki persónuupplýsingum utan EES nema slíkt sé heimilt skv. persónuverndarlögum á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykkis þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónupplýsingum fullnægjandi vernd.
7. Öryggi persónuupplýsinga
Viðeigandi tæknilegar og skipulegar ráðstafanir eru viðhafðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna.
8. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
Þær persónuupplýsingar sem við vinnum með þurfa að vera bæði réttar og viðeigandi. Ef upplýsingar um þig eru rangar, áttu rétt á því að fá þær leiðréttar. Ef upplýsingar eru ófullkomnar áttu rétt á því að láta fullgera þær með því að leggja fram frekari upplýsingar.
9. Réttindi þín
Þú getur óskað staðfestingar á því hvort við vinnum með persónuupplýsingar um þig eður ei. Ef svo er getur þú óskað eftir aðgangi að upplýsingunum og hvernig vinnslunni er háttað. Þú kannt einnig að eiga rétt á afriti af upplýsingunum. Þú kannt að eiga rétt á því að við sendum upplýsingar sem þú hefur sjálf/ur látið okkur hafa eða stafa frá þér, beint til þriðja aðila. Þá kanntu að eiga rétt á því að persónuupplýsingum um þig verði eytt án tafar, t.d. þegar varðveisla þeirra er ekki lengur nauðsynleg miðað við tilgang vinnslunnar eða afturköllunar samþykkis þíns fyrir vinnslunni eða ef heimild til grundvallar vinnslunni er ekki lengur til staðar. Sé vinnsla byggð á samþykki getur þú hvenær sem er afturkallað samþykkið.
Framangreind réttindi eru ekki algild. Lög kunna að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Félagið getur einnig hafnað beiðni þinni ef réttindi annarra vega þyngra t.d. vegna friðhelgi einkalífs.
10. Kvörtun til Persónuverndar
Þú hefur rétt á að kvarta til Persónuverndar.
11. Samskiptaupplýsingar
Persónuverndarfulltrúi FBG ráðgjafar er Friðjón B. Gunnarsson. Netfang hans er fbg@fbg.is og símanúmerið er 779-0900.
12. Breytingar
Stefna þessi kann að breytast reglulega. Breytingar taka gildi um leið og stefnan hefur verið birt á vefsíðum okkar.
Þessi persónuverndarstefna var síðast uppfærð þann 25. apríl 2024.
13. Vefkökur
Tilgangurinn með vefkökustefnu þessari er að upplýsa notendur vefsíðunnar www.personuverndarfulltrui.com um notkun síðunnar á vefkökum.
Hvað eru vefkökur?
Vefsíðum er gert kleift að þekkja tölvur og snjalltæki notenda, með notkun á vefkökum. Vefkaka merkir stafrænt hvar þú hefur verið á vefnum. Netvafrinn þinn vistar textaskrár á tölvunni þinni svo fremi sem vafrinn þinn sé stilltur til þess að samþykkja notkun á vefkökum. Vefkökurnar gera það svo mögulegt að muna ákveðnar stillingar hvers notanda til að hægt sé að bæta notendaupplifun og fá tölfræðiupplýsingar um notkun vefsíðunnar.
Vefkökur á vefsvæði okkar
Til að auðvelda þér notkun vefsvæðisins notum við vefkökur. Þær sjá til þess að vefsvæðið muni eftir þér svo þú þurfir ekki að endurtaka valið í hvert sinn er þú heimsækir síðuna okkar. Vefkökurnar safna tölfræðilegum upplýsingum og öðrum upplýsingum um fjölda notenda á vefsvæðinu og þær vefsíður sem þeir fara á.
Við notum Google Analytics til greiningar á umferð um vefsvæðið okkar og til að aðgreina þig frá öðrum notendum svæðisins. Í því felst að upplýsingum er safnað og skýrsla útbúin um þróun vefsvæðisins án þess að fram komi upplýsingar um staka notendur eða persónuupplýsingar. Google Analytics býr til bæði viðvarandi kökur og lotukökur.
Viðvarandi kökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á síðunni. Lotukökur gera síðunni kleift að tengjast aðgerðum notanda á meðan hann er á síðunni en eyðast almennt þegar notandi hættir notkun síðunnar og eru því ekki vistaðar til lengri tíma.
Nauðsynlegar vefkökur eru eins og nafnið ber með sér nauðsynlegar svo síðan virki rétt. Þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Tölfræðikökur bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingar um notkun hennar.
Vefkökustefnan getur breyst til samræmis við breytingar á lögum eða vegna breytinga á notkun okkar á vefkökum.
Þessi vefkökustefna var síðast uppfærð þann 25. apríl 2024.

Persónuverndarfulltrúi fyrir þitt fyrirtæki.
HAFA SAMBAND
FBG ráðgjöf ehf.
Stekkjarbakki 6, Reykjavík
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is